Vestmannaeyjahlaupið verður 7. september 2024
22.04.2024Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 7. september.
Boðið verður upp á 5 km og 10 km.
Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 6.september í Íþróttamiðstöð Ve.
Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2009 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is
Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.